DaDdArA
Hitt og Þetta
27.10.2005 23:49:43 / sigrun

Ég er HÆTT!!!!

Við Sabbó erum búnar að ákveða að færa samband okkar á annað stig, og ég er farin inn á hennar síðu því hún er miklu meira töff ( mér var mútað að segja þetta), allir að fara á:
                                 http://www.blog.central.is/krebel

Jessöríbob..

Þar verðum við að bull allan heila dagin.. Erum búnar að hætta í vinnunum okkar svo að við höfum tíma fyrir allt þetta blogg..8|

Nei smá ýkjur, en allavega.. Allir þangað.. NÚNA..
Takk fyrir pent..

Sjáumst :haha:

» 20 hafa sagt sína skoðun

19.10.2005 23:57:58 / sigrun

nenni ekki að blogga!!

En ætla samt að gera það;) Það er svo mikið að farað gerast hjá mér að ég veit ekkert hvar ég á að byrja:$ En allavega, núna um helgina er planið að fara suður, þótt það er ekki alveg víst með hverjum því að engin vill koma með mér:cry: Okey segi það kannski ekki, en Elva nennir ekki, anna á ekki pening og Sabbó er að vinna,en ég hef samt ekki gefið vonina uppá bátin með hana ennþá því ég er svo ógeðslega frek8) Dagny er svo líka að skoða þetta e-ð, þannig þetta kemur allt í ljós, en hvort sem ég fer með einvhverjum eða ekki þá ætla ég, alveg sama hvortég fari ein:!: Ég er allavega búin að ákveða að í þessari ferð verður nó af áfengi, ég piss full báða dagana, og ég að gera einhvern skandal, nei bíðið bíðið SKANDALA:haha: Nei segi bara svona, en það er samt aldrei að vita hvað minni dettur í hug í borg óttans:klikk: en svo næst á dagskrá er 20 ára afmælið hennar Önnu sætu sem haldið verður 4 nóv á barnum, og það verður örugglega án efa feitasta fyllerí sögunar, og VÁ hvað mig hlakkar til, nenni ekki að bíða, þetta verður geðveikt:haha: síðan er það önnur rvk ferð í nóv, reyndar er það allt í vinnslu ennþá það þarf að velja á milli tveggja helga en það kemur allt í ljós:P og svo er það auðvitað tíminn milli 2 í jólum og til 1jan og eins og ég hef áður sagt þá get ég ekki beðið eftir því heldur, þannig það er margt til að hlakka til hjá mér:haha:og svo inná milli að vinna, avúhú:!:Ég er e-ð svo löt, ég nenni ekki neinu, komin með geðveikan skólaleiða og er bara ekki að nenna að fara á fætur á morgnana,(sem ég er búin að níta mér vel eftir að mamma og pabbi fóru út:klikk:) nenni ekki að vinna og nenni ekki að gera ekki neitt, það eina sem ég nenni að gera er að hanga með Sabbó :haha: Sem minnir mig á það, ÞÚ VERÐUR AÐ KOMA MEÐ SUÐUR;) en ég man ekki betur en að ég hafi verið kítluð hérna um daginn og ef ég segi rétt frá þá á ég að segja frá einhverju sem ég get ekki,

1.Ég get ekki sofið með ólæsta dyr í svefnherberginu mínu ef ég sé ein heima og hvað þá ef ég sé búin að vera að horfa á hrollvekju.(nema það sé einhver hjá mér):lol:

2.Get ekki sofnað með tónlist, nema þegar ég leggst uppí rúm full, þá er mér alveg sama8|.

3. Ekki séns að ég geti verið góð við fólk sem ég hata eða mér líkar ekki við:evil:

4.Get ekki hætt að reykja því ég vill það ekki:klikk:

5. Get ekki lifað án bestu vina í heimi sem ég á núna né fjölskyldu:haha:

Þetta er geggjað erfit, og ég ætla að kítla, Dagný, Evu, Auði og Rögnu Dís, og svona vara til að segja ykkur það sem þekkið þetta ekki, þá má bara kílta manneskju einu sinni, það er það besta við þetta;) en jæja þetta er komið nó og ég ætla uppí rúm að lulla, kveð í bili

Sigrún:P


» 106 hafa sagt sína skoðun

16.10.2005 15:24:54 / sigrun

Hello!!!!

Get nú ekki alveg sagt að helgin sé búin að vera mikið spennandi hjá mér, Var að vinna á föstud til að verða 12,sem var samt frekar gaman því að ég og Eva vorum að vinna saman og vorum e-ð smá að flippa;) fór heim, Sabbó kíkkti til mín, drakk nokkra bjóra, horfðum á sjónvarpið og fórum að sofa, avúhú:$ Á laugardaginn, lærði, fór að vinna kl 6-02, kom heim, horfði á sjónvarpið og sofnaði fyrir framan það, geðveikt ha?:cry: á meðan Elva,Anna og Sabbó voru blekaðar á króknum og skemmtu sér geggjað vel:!: En næstu helgi er Airwaves eða svo ég held og við stelpurnar ætlum að skella okkur þangað, er það ekki annars:haha: Og ég er svona að spá í að vera á eyrnasnepplunum allan tíman, svona til að bæta upp seinasta rvk djamm8) En það er ekki búið að vera mikiðað gerast hjá mér þannig ég veit ekkert hvað ég á að segja, En eins og Elva skrifaði hjá sér þá styttist í að kokkar án klæða eða the cocks(erum ekki alveg búin að ákveða nafnið) hittast og elda saman og ég get ekki beðið:haha: fyrir þá sem vita ekkert þá elduðum við saman áramótasteikina í fyrra, ég, Elva og Sabbó og vorum pínu fullar frá 2 í jólum til nýárs8) En ég veit ekkert hvað ég á að segja meira þannig kannski að ég ljúku þessu bara núna því ég er bara eins og ég er hehehehe:haha: mér finnst þetta bara svo fyndið;) Og Anna skoðum íbúðir í Ás... ætla ekki að segja nafnið því að hver veit hverjir lesa þetta:haha: En allavega BLESSSSS

Sigrún


» 22 hafa sagt sína skoðun

10.10.2005 01:34:14 / sigrun

Im back;)

Jæja þá er ég komin úr góða veðrinu úr danaveldi og komin í viðbjóðslega veðrið hérna á Íslandi:(  En það er samt alltaf gott að koma heim. En ég bíst nú við að allir vilji vita e-ð um ferðasögu mína þannig ég ætla að gera langa sögu stutta og segja ykkur frá ferðini8) Á föstudeginum þarsíðasta fórum við Ásta suður og var mikill speningur komin í mína, um kvöldið kíkkti ég heim til Guðdísar,Elva og Björg voru þar líka og var ég hjá þeim í smá stund og var síðan ferðini haldið í hafnafjörð. Ég held að það hafi tekið okkur svona 40 mín að finna helv.. götuna sem ég átti að fara í þar en það tókst, tökk sé stelpunum fyrir að keyra fyrir framan mig og Sunnu sem reddaði þessu, ef þær hefðu ekki verið þarna með mér þá væri ég örugglega ennþá að reyna að leyta að götuni:$ En allavega þá hitti ég Þröst sem var voða gaman, og við vorum bara e-ð að keyra... og síðan var drullað sér heim til að getað vaknað snemma. Kl 5 vöknuðum við Ásta eldhressar og alls ekki miglaðar;) og brunuðum til keflavíkur, þegar við vorum búnar að tékka okkur inn þá var bara sest niður og fengið sér nokkra bjóra8) Þegar við komum til dk þá tékkuðum við okkur inn á hótelið sem var ekki spes, ekki eins stutt frá strikinu og ég hélt,(en samt ekkert voða langt frá) gormarnir í rúminu stungust uppí bakið á okkur, ekkert tv, og risa kirkja á móti sem var með þessar skemmtilegu bjöllur sem hringdu e-ð um 8 og 12:^) og ÁN GRÍNS þá hringdu þær í svona 5-10 mín:!: en við vökknuðum allavega allataf snemma. síðan var bara byrjað að verlsa og því var ekki hætt fyrr en daginn áður en við fórum heim:haha:Ég er samt ekki frá því að ég hafi fengið fráhvarfseinkenni með Sabbó því við erum ALLTAF saman og það var engin Sabbó í 6 daga:cry: En á mánudaginn gat ég ekki sofið og svaf kannski í mesta lagi í klukkutíma því ég var svo ógeðslega spennt á að fara á tónleikana og það var sko þess virði;) við mættum frekar snemma svona til að vera ekki aftast og það var aðeins erfiðara að vera þarna en ég hélt. við sátum í svona 3 tíma, síðan heyrði ég í þeim hita upp og það munaði engu að ég hafi farið að grenja:haha:, en síðan stóðum við í 2 tíma röð til að komast inn, húsið opnaði 6 og þegar var við komun inn þá var ég sko orðin spent, pínu þreytt í löppunum samt, síðan kl 8 kom á svið söngkona sem hitaði upp og Vá hvað það ver geðveikt og síðan kl 9 komu Backstreet Boys:haha: Þetta var svo geðveikt, hnén á mér skulfu svog þegar þeir komu inn á sviðið og ég öskraði svooo mikið8) Þeir tóku bæði ný og gömul lög, vorum með geðveikt show og voru bara GEÐVEIKIR og shit hvað Nick er FALLEGUR, og svo voru líka bara e- um 10 manneskjur fyrir framan okkur, þannig við sáum geðveikt vel;) og þetta var án efa besti dagur lífs míns:haha::haha::haha: svo í strætónum á leiðini á lestarstöðina sem var svo troðin að það var ógéð, þá voru allir að syngja bsb lög og allir í geðveiku skapi, bara snilld;) En eftir þennan dag var gooott að komast uppí rúm. Þessi dk ferð var geðveikt skemmtileg, verlsaði helling, drakk bjór alla dagana og borðaði besta mat í heimi:haha:

Síðan þegar ég kom heim á fimmtudagin, þá fékk ég bílaleigu bíl, kíkkti í vinnuna til Guðdísar, fórum í kringluna og fór síðan í hafnafjörðin, Guðdís var svo góð að fylgja mér aftur og sem betur fer gerði hún það, því þessi ferð gékk ver en hin8| Fór heim til Þrastar með draslið mitt, var síðan dregin út á tónleika sem voru svo leiðinlegir að ég vildi á tímabili skera af mér eyrun:( En Hera og Ragnheiður Gröndal voru fínar. Síðan komu Anna María og Sabbó, og við fórum fljótlega í fjörðin heim til Þrastar, spjölluðum í smá sund og síðan fórum við að sofa, og vá hvað það var gott að sofa í góðu rúmi;) Síðan á föstudaginn vaknaði ég kl 9, ekki alveg nóu sátt, náði í stelpurnar til Eika og við fórum e-ð að brasa, um kvöldið fóru stelpurnar á djammið en ég var e-ð að pirrum og fór heim, STÓR mistök:!: á laugardaginn vaknaði ég aftur kl 9, sem var reyndar ágætt, því Guðdís hringdi í mig því hún náði ekki í Sabbó, þannig ég fékk neglur, hehehe algjör pæja:haha: síðan um kvöldið var fengið sér nokkra bjóra, ég, anna og guðdís fórum til vínkonu önnu og við guðdís vorum að fara á kostum þar, ALLTAF að syngja8) Síðan fórum við á Gaukinn á jet black joe, sem var fínt og síðan Glaumbar, ég ELSKA Glaumbar, það var bara snild, sumir fækkuðu fötum meðan aðrir voru að dansa rassadans við bláókunnugan gaur8| Síðan fórum við heim til Frikka í ígor sem eldaði handa okkur, hakk og spagetti, síðan dó ég í smá stund:lol: og svo fórum við anna í hafnafjörð e-ð um 9, og fórum að lulla. Það var samt bara snild þegar við vöknuðum um 1 og Þröstur stóð í dyrunum og starði á okkur, og skildi örugglega ekki neitt, hehe;) síðan náði ég í Sabbó og ferðini haldið heim, home sweet home, en eins og við Sabbó erum, þá stoppuðum við ekki lengi heima, heldur fórum í bío og rúmtuðum síðan smá, en núna er ég að deyja úr þreytu og þetta er orðið meira en gott hjá mér:haha: þannig ég er að pæla í að fara að lulla og kveðja ykkur í bili. (p.s Anna María þú skuldar mér feitast fyrir laugadaginn;)),

Sigrún


» 26 hafa sagt sína skoðun

30.09.2005 13:22:14 / sigrun

og ég var klukkuð aftur!

1. ég elska að kupa föt:haha:

2. Ég er komin með ógðéð á að búa á Íslandi og langar að flytja sem lengst í burtu8)

3. Ég ELSKA bjór og gæti drukkuð hann sem vatn:D

4. Ég hata að vera í skóla en samt langar mig geðveikt að klára og ætla að gera það:$

5. Ég elska að skemmta mér og ætla að gera það þangað til ég verð í öndunartæki á elliheimilinu;)

En ég verð víst að klukka 5, Ég geri þetta bara því að ég elska þig svo mikið;) Sabbó hehe,Guðdís,Anna María,Ragna Dís og Halla:haha:

En allavega, þá er ég búin að fara í, klippingu og litun, plokkun og litun og búin að fara í nokkra ljósatíma og er tilbúin fyrir Nick Carter:haha: Ég og Ásta förum suður kl 4 gistum hjá systir mömmu og þurfum að vakan svona 5 á morgun um morguninn því flugið fer kl 07:30, þannig ég á eftir að vera ógeslega sæt á flugvellinum8) En ég held að morgun dagurin fari allur í að vera á strikinu og VERLSA:haha:Hótelið okkar er MJÖG stutt frá strikinu, Síðan annað kvöld verður fengið sér nokkra bjóra:D Ásta sagði að það væri regla að fá sér 2-3 áður en við förum í loftið, þannig ég sofna kannski e-ð;) En jæja people ég er að spá í að skella mér í sturu og pakka niður því ég er ekki búin að því:$ og bíða svo spennt eftir að fara. Þannig ég kvða ykkur í bíli og ég efast um að ég bloggi e-ð úti, en þangað til næst

Sigrún kveður á leið í Danaveldi:haha:


» 114 hafa sagt sína skoðun

28.09.2005 15:34:51 / sigrun

Klukk kjaftæði

  

 5 staðreyndir um mig,                                                                                                                                                        1 Ég þykir geðveikt vænt um alla vini mína og er geðveikt heppin að hafa þá 

2.Ég dýrka Backstreet boys og Nick Carter ennþá meira:haha:

3.Ég elska að sofa og þoli ekki þegar ég á að vakna á morgnana og verð oft  MJÖG pirruð þegar það er verið að vekja mig

4.Ég er mjög ánægð með lífið eins og það er núna eftir ömurlegasta ár lífi mínu:!:

5.já og ég er víst algjör frekja:D

Og ef ég man rétt þá má ég klukka 5 manneskjur, hmmm 8) Elva, Björg, Sunna, Sabbó  og Dagný:haha: Love you

En jæja það lítur út fyrir það að ég verði vara ein að blogga í vetur og í framtíðini þar sem Lísbet hefur ekki tíma en hún má nú samt alveg skrifa einu sinni í mánuði eða e-ð:P En það styttist hratt í að ég hafi út og það eru bara 3 dagar og mér hlakka svo geðveikt til:!:  Ég og Ásta ætlum að kaupa og kaupa og kaupa8) Þetta verður geðveikt og já vitiði ég ætla að fá mér einn og einn bjór líka hehe;)  en Allavega´, í gær fór ég til Ástu að láta hana lita á mér hárið og ÁI!!!! Shit hvað hún var ALLTAF að rífa geggjað fast í hárið á mér og það kemur mér ekkert á óvart að ég sé með svona 20 skallabletti:S  En hárið mitt er voða fínt þannig þetta var allt í lagi. En um kvöldið kíkktum við Elva á kaffihús og það var voða gaman, það er alltaf gaman hjá okkur í þessi fáu skipti sem við hittumst því við höfum alltaf svo mikið að segja:P  En jæja ég nenni ekki að skrifa meir því ég hef ekkert að segja, ætla að fara að taka mig til því ég er að fara í plokkun og mér er strax byrjað að kvíða fyrir því mér finnst það svo vont:$ en þangað til næst

Sigún                                             

                                                            


» 106 hafa sagt sína skoðun

26.09.2005 12:53:17 / sigrun

Well, Well, Well!

Já helgin var mjög skemmtileg eins og hún var skrautleg:$ Á föstudaginn var ég að vinna frá 18-02 sem var svona allt í lagi. Á laugardaginn fórum við Sabbó svo á krókinn með Dagný, frekar skrítið hvað margir héldu að það væri ófært og það væri ekki hægt að komast á milli á sumardekkjum, en neinei það var autt alla leiðina í varmahlíð:!: :Þegar við komum á áfangastað þá fórum við heim til Elvu og Gumma og tókum okkur til, Björg Elska málaði mig og Elva Elskan lánaði mér bol þannig ég var voða fín;) Síðan smám saman byrjaði fólkið að týnast inn, já það var frekar margt um mannin þarna en það var samt GEÐVEIKT gaman:haha: Það var allt fljótandi í áfengi og það voru allir mjög góðir þegar við mættum á ballið og flestir héldu sér vakandi:haha: Ég skemmti mér geggjað vel á ballinu, utan við það að detta aftur fyrir mig(sem ég skil ekki hvernig mér tókst:$) og ég er með fallegan marblett á bakinu og frekar íllt, síðan sat ég á ofni til að hlýja mér, datt af honum beint á bossan og skall hausnum í ofnin, síðan er ég með kúlu á enninu sem ég veit ekkert hvernig ég fékk og einnig var ég að dansa ein eins og hálviti í stúkuni og e-ð svona skemmtilegt, það er líka margt sem gerðist sem verður ALDREI aftur talað um, Ha Sabbó? 8| eftir ballið þá fórum við, Anna María og Eiki heim til Elvu og fórum fljótlega að sofa eftir það, hmm bíðið aðeins, við sváfum 4 í hornsófa:!: já Anna og Eiki sváfu þar sem var beint með sæng og kodda og svona nice og ég og Sabbó sváfum í beyjuni með lítið prjónateppi, en við komumst að því seinna að það var stórt flísteppu hjá Önnu sem við tókum ekkert eftir:evil: Mjög skemmtileg nótt:!: Síðan vöknuðum við kl 118| Öll frekar úldin og sæt svona eins og maður er á mornanna:$ töluðum e-ð og hlóum eins og asnar, og ég man nú ekki betur en að mínir svokölluðu vinir hafi verið að skjóta einhverju á mig:cry: sem mig langaði að deyja þegar ég heyrði:!: Síðan þegar allir voru vaknaðir og klæddir þá fórum við á Ábæ til að boðra þynkumatin, sem var gooott, utan við að pizzan okkar Sabbóar hefði mátt vera aðeins betri:evil: Síðan fórum við til Elvu horfðum á imaban og fórum síðan heim um 5. Við Sabbó settum inn myndir í gær síðan á laugardaginn og það munu koma fleiri í vikuni, þannig endilega kíkkið á þær og njótiði vel:haha:

Sigrún


» 108 hafa sagt sína skoðun

19.09.2005 00:03:54 / sigrun

soldið spes helgi!

Já ég verð nú að viðurkenna það að þetta var ekki skemmtilegasta helgi sem ég hef átt:!: Á föstudaginn var ég í skólanum til 1 og fór svo að vinna kl 4-02, við Eva vorum bara 2 frá hálf 12 til 2 og það var bara gaman, þangað til svona á milli 1 hálf 2, þá var komin tími til að sía fituna í djúpsteikingarpottinum, ég byrjaða á því að skrúa frá og var nýbúin að segja við Evu að ég væri svo hrædd um að brenna mig á þessu, enda er þetta ekkert smá heitt, og hvað haldiði? mér tókst að brenna mig:( sem var ekki gott, þannig ég fór og setti burn free krem á mig sem leit út eins og brund, og lét svo Evu hjálpa mér að láta plástur á fingurna á mér, síðan ætlaði ég gá hvort þetta væri ekki verða til inní eldhúsi og mér brá skelfilega það sem ég sá:| Haldiði ekki að Sigrún Kristinsdóttir hafi ekki bara kveikt í helvítis djúpsteikingarpottinum8| Jújú þarna horfði ég á eldin og vissi ekkert hvað ég átti að gera, sagði Evu að það væri kviknað í og smám saman stækkaði eldurinn, Eva voðalega róleg meðan ég hélt að ég væri að fá hjartaáfall og sá bara fyrir mér að skökkvuliðið myndi koma og að ég væri búin að kveikja í pleisinu, en við fundum eldslökkvitæki og Eva sprautaði einni og sprautu og allt fór, mér til mikillar ánægju en var samt að fara yfir um af áhyggjum, en þetta endaði samt allt vel:$ Síðan eftir vinnu kíkktum við Sabbó smá á rúmtinn sem var stuð eins og alltaf, síðan á leiðini heim í mínum róligheitum sé ég þá ekki lögguna fyrir aftan mig taka u beyju og troða sér á milli mín og bílsins fyrir aftan og ég fékk bláu ljósin:!: Síðan kom löggan út skoðaði ökuskirteinið mitt sagði mér að það væri óholt að reykja:!: (hvað er að?) og síðan var ég látin blása:!: En þar sem ég var ekki full þá var þetta allt í lagi og fór síðan heimað sofa, skemmtilegt föstudagskvöld hjá mér ha? Á laugardaginn gerði ég ekkert, Sabbó kom síðan um 6 og við pöntuðum Pizzu:haha: Síðan kom Baldur bróðir og Linda með Klöru Hrund og ég passaði hana, Hún er SVOOO SÆT:haha: og það var bara gaman utan við smá atvik:P Síðan horfðum við á the shining, en það sem Sabbó var alltaf að sofna:haha: þá kíkktum við smá út og síðan heim einhverntíma eftir það, og í dag gerði ég ekkert vann frá 4-10 kíkkti út með Sabbó og núna er ég farin að sofa, Góða nótt

Sigrún fierstarter:klikk:


» 102 hafa sagt sína skoðun

13.09.2005 01:04:38 / sigrun

BLABLABLA!!!

Once we were lovers
Just lovers we were
Oh what a lie
Once we were dreamers Just dreamers we were
Oh you and I

Now I see you're just somebody
Who wastes all my time
And money
What a lie
You and I

What about your
Your ten thousand promises
That you gave to me
Your ten thousand promises
That you promised me

Once I could handle the truth
When the truth was you and I
Time after time all the promises
Turned out to be all lies

Now I see I'm just somebody
Who wasted my time and money
What a lie,You and I

You say I'll take you back
But I close the door
Cuz I don't want
Ten thousand more

Að mínu mati eitt flottasta lag sem Backstreet Boys hafa gert, 10,000 Promises, Það styttist ekkert smá mikið í að ég fari út og ég get ekki beðið:!: Við systurnar erum allavega búnar að ákveða að fara út 1 okt en ekki alveg búin að ákveða hvenar haldið verður heim, en það kemur í ljós seinna. En allavega það gerðist voða fátt hjá mér um helgina, var að vinna 18-02 bæði föstudag og laugard, fór beint að sofa eftir vinnu á föstudaginn en við Sabbó kíktum aðeins út á laugard, alltaf jafn gaman þegar við erum saman:haha: Sunnudagurinn var svo tekin í leti, kíkkti síðan nokkra hringi með Sabbó sem var geggjað stuð og svo frekar snemma heim. En í dag kom ég sjálfri mér á óvart, ég var sett í útivistaráfanga sem ég skráði mig ekki í, sem felst í því að labba frekar langar gönguferðir og planið var að labba uppá súlur:!: En sem betur fer var hætt við það og labbað var út í Kjarna og til baka aftur, og auðvitað fundu íþr kennararnir lengstu og ömurlegustu leiðina en þetta var samt mjög fínt og ég lifði þetta af, tók 2 tíma og einhvernvegin get ég verið alveg viss um það að ég muni fá einhverja strengi þegar ég vakna á morgunn:( En í kvöld fórum við Sabbó á  Charlie and the Chocolate Factory sem var vera mjög skemmtileg, hló alveg helling af einu atriðinu og var örugglega sú eina í salnum sem hló:haha: og Johnny Depp er auðvitað BARA FALLAEGUR:!: Nammi nammi:klikk: Skil ekki hvernig hægt er að vera svona ótrulega fallegur og hann er 418| Nógu gamall til að vera pabbi minn:!: en svona er þetta, sumir eru heppnari en aðrir með útlit, en jæja áður en ég fer að bulla e-ð meira kjaftæði þá er ég farin að sofa áður en að hausinn springur af mér, fæ að sofa til hálf 11 því stæ kennarinn er ekki8) Góða nótt

Sigrún Göngugarpur hehe:haha:


» 20 hafa sagt sína skoðun

07.09.2005 22:01:24 / sigrun

Nýjar myndir



NÝJAR MYNDIR
Loksins eru komnar nyjar myndir so enjoy it:haha:
Sigrún

» 20 hafa sagt sína skoðun

06.09.2005 23:40:20 / sigrun

Berkjabólga!

Þegar ég er ný búin að losna við æðislega hálsbólgu þá fæ ég berkjabólgu:!: þannig ég er búin að vera hósta slímköglum á stærð við snjóbolta í dag, gæti ekki verið betra:( Þökk sé Brynju elsku þá er ég komin með vinnu í leiru þar sem ég vann einu sinni, þannig enn og aftur er ég að fara að steikja hamborgara sem verður örugglega mitt ævistarf  hehe:haha: En til að blogg  um e-ð aðeins skemmtilegra en hamborgara og slímkögla þá var helgin snild:!: Ég og Hrafnhildur A.K.A Sabbó fórum á krókin á föstudaginn með Maríu Dröfn á smá busaball í Miðgarði með á Móti sól. Byrjuðum á að fara til Elvu að taka okkur til og ég held að við höfum byrjað að drekka e-ð um kvöldmat þannig allir voru orðnir vel hressir þegar ferðini var haldið í Miðgarð;) Ballið var mjög skemmtilegt og ég held að ég geti lítið kvartað yfir því. Ég hringdi í Elvu elskuna mína til að vita hvar hún væri og hvar maður ætti að gista og sonna, hún var heima hjá Sunnu og sagði að það væri nó pláss þar fyrir okkur þannig við fórum þangað en neinei það var ekkert pláss þannig við Stefí fórum til Bjargar og gistum þar. Vaknaði svo með hálsríg eftir að hafa sofið með RISA kodda beið eftir að Stefí myndi vakna, löbbuðum svo til sunnu í fötunum sem við vorum í á ballinu, get ekki sagt að ég hafi verið í besta bol í heimi en ég vona bara að engin hafi séð mig:haha: Svo var fengið sér að borða og fljótlega eftir það var ferðini haldið heim, með Dagný og Guðmani.Síðan á laugardagskvöldið kíkktum ég, sabbó, eva, dagný og jóna á vélsmiðjuna. Sem var geðveikt gaman, Dagný og Jóna fóru eiginlega strax en við þrjár dönsuðum í gúddí fíling og svo urðum við sabbó bara 2 og gerðum okkur að fíflum:haha: Stuðuð gerðist samt eftir ballið en eins og oft áður þá mun það bara lifa í minninguni:haha: Svo á sunnudaginn var ég bara heima með beinverki, hálsbólgu,að drepast úr kulda: og með nefrennsli$ gæti ekki verið betra:!: En jæja næstu 3 helgar plús einhverja virka daga verð ég að vinna í leiru til að safna mér gjaldeiri til að taka með til Danmerkur, sem styttist og styttist, get ekki beðið eftir að fara og sjá Nick Carter:haha: Ef mér tekst þá að sjá hann ef það líður ekki yfir mig en það kemur í ljós:klikk: En jæja nenni ekki sð skrifa meira, ætla samt að reyna að vera aðeins dugleri að skirfa en þangað til bíð ég góða nótt

Sigrún


» 19 hafa sagt sína skoðun

24.08.2005 19:26:38 / sigrun

Það er gott að elska.. lalala

Ég fór að pæla í því um daginn hvað lífið var ótrúlega einfalt þegar maður var lítill.. ég var að vinna í 10-11 og inn gengu mæðgur, ung stelpa og önnur á leikskólaaldri. Á eftir þeim kemur önnur ung stelpa inn nema með strák á leikskólaaldri.. krakkarnir þekktust greinilega því án þess að þau heilsuðu hvort öðru voru þau farin í eltingaleik í kringum salatbarinn.. Svo ég fór að hugsa með mér hvað allt væri auðvelt ef maður myndi bara fara í eltingaleik við fólk sem maður kannast við svona í staðinn fyrir að svitna af áhyggjum yfir hvort maður eigi að heilsa manneskjunni eða ekki. Ég meina, hver kannast ekki við það að vera einhvers staðar og sér allt í einu manneskju sem maður svona þekkir og þekkir ekki, einhver sem maður sér á hverjum degi í skólanum, er vinur vinar síns eða hvað sem er.. Ég er sjálf alveg ótrúlega feimin.. svona edrú allavega.. og finnst oft auðveldast að horfa bara í hina áttina þegar ég mæti einhverjum sem ég veit ekki hvort ég á að heilsa, virka örugglega eins og bitch.. Veit ekki, en það væri kannski þá bara sniðugt að fara bara upp að þeirri manneskju, segja "klukk, þú ert´ann" og þá myndum við alveg pottþétt heilsast næst:$ Jæja..

Hafiði einhvern tímann vaknað og bara "já nú veit ég hvað ég ætla að gera þegar ég er búin með menntaskólann", eða hafiði bara alltaf vitað hvað þið ætlið að gera? Ég allavega hef lent svona tuttugu sinnum í því að ljósið kviknar og ég veit hvað ég ætla að gera.. til Danmerkur í íþróttaskóla, Þýskalands í nám, arkitekt, fimleikaþjálfari, fjölmiðlafræðingur og já ég veit ekki hvað og hvað.. en nú held ég svo sannarlega að ég hafi séð ljósið!! Ég ætla í fatahönnunarnám, ótrúlegt að ég hafi aldrei fattað þetta því ég er alltaf að sauma, búin að sauma tvo árshátíðarkjóla, peysur, boli og aftur boli... Svo núna er planið að fara í borgina eftir fjórða bekk, finna sér góða vinnu til að vinna í eitt ár og fara í iðnó.. jább, ég get alveg hugsað mér að gera þetta:D

Er að fara að kaupa mér bíl, er einhver að selja góðan ódýran bíl? Ég er samt búin að finna einn sem ég er soltið skotin í 8)

Lísbet


» 21 hafa sagt sína skoðun

17.08.2005 00:19:01 / sigrun

Backstreet boys here I come

Backstreet boys - NEVER GONE TOUR , Gigantium Olympiaparken Aalborg Tirsdag 04 okt Kl 20:00  

Loksins er draumur min orðin að veruleika :haha:  Ég Sigrún Kristinsdóttir er semsagt að fara á tónleika með uppáhalds hljómsvetini minni síðan ég var 11 ára 4 okt og ég get EKKI beðið :haha: Miðarnir komu á laugardaginn og Ásta besta systir í heimi ætlar að koma með mér og standa fyrir aftan mig þegar það líðuryfir mig og hugga mig þegar ég fer að grenja þegar ég sé Nick Carter hehe;) ÉG er reyndar ekki alveg að fatta það að ég sé að fara eftir öll þau ár sem ég er búin að halda uppá þá en þetta verður GEÐVEIKT :P Húsið opnar kl 18:00 og ég ætla að vera m´tt svona 12:00 til að vera fremst því ég ÆTLA að standa fremst og greyið þau sem verða fyrir mér því þau verða lamin8) En til að tala um e-ð annað þá fórum við Sabbó til sauðarkrókar um helgina og vá hvað það var gaman:!: Á föstudeginum vorum við heima hjá Gumma og Elvu og var fengið sér í glas og allir orðnir góðir þegar ferðinin var haldið á barinn og þrátt fyrir það að það var fámennt þá var samt geðveikt gaman. Á laugardagskvöldið var síðan aftur fengið sé í glas og skellt sér út og það var reyndar ekki eins gaman fyrr en það var búið að loka á barnum, þá safnaðist hellingur af fólki fyrir utan og það var geggjað gaman. Það er einn maður þarna sem kallaður er biggi lögga og er lögga á króknum og án efa mesti perri sem ég veit um:!:  hann var blindfullir að reyna að slefa uppí alla eða svona næstum og var svo að kinna okkur fyrur þumalputtanum sínum sem heitir Tumi og hann getur sko fullnægt konum segir hann8| Algjör viðbjóður :!: En þetta var samt frekar fyndið allt saman. Eitt eftirminnilegt atvik var þegar MJÖG margir sátu fyrir framan Kaffi krók og voru að tala saman og svoleiðis og segir sabbó frekar hátt "ég er búin að sofa hjá öllum í lögguni" og akkurat þegar hún sagði þetta þögnuðu allir :haha: Þetta var snilldar helgi. En næstu helgi er víst menningarnótt  í rvk og það er víst alveg heill hellingur að fara þangað og þar sem ég hef aldrei farið langar mig svo GEÐVEIKT mikið og er mikið að pæla í að fara og skemmta mér smá áður en skólinn byrjar:^) Ætlar einhver að fara???? En jæja ég nenni ekki að skrifa meira en þið megið alveg búast við því að ég muni tala e-ð um BSB þangað til ég fer og kem örugglega með nokkrar línur úr lögunum þeirra, en þangað til veriði BLESS 8)         

Sigrún                                                    


» 23 hafa sagt sína skoðun

09.08.2005 23:37:02 / sigrun

Sigrast á flughræðslu

Ég sem er ótrúlega flughrædd steig upp í tveggja manna vél, eishreyfla skils mér, með Ingvari á laugardaginn og við rúntuðum smá.. Flugum yfir Dalvík og Húsavík. Fjölskylda mín var á Húsavík svo ég ákvað að hringja í þau, já það er samband í loftinu, og sagði þeim að kíkja út. Ég var soltið snemma í því svo þegar þau komu út vorum við ekki alveg komin yfir og þau skildu ekkert í þessu.. þá segir Helen: mamma, þú veist alveg að Lísbet hefur aldrei verið góð í landafræði!!! hmm.. En jæja, ferðin hélt áfram yfir Dettifoss og svo lentum við á flugvellinum á Mývatni og fengum okkur að borða á Gamla bæ. Maturinn þar var svo geðveikt góður og ég held ég hafi aldrei borðað jafn mikið og þá.8| Svo flugum við aftur til akureyrar, fengum okkur bjór og slöppuðum af.. ljúfur laugardagur.. uss..8)

Versló hjá mér?? Getið lesið um það hér fyrir neðan.. annars svona í stuttu máli,     fös: ég + bjór = vandræði  og   lau: ég + bjór + sjallinn = klúður. sun: ég bara bílaði og var farin snemma heim að sofa.  Ég átti að vera í fríi alla helgina en þurfti að mæta í smá stund bæði lau og sun :(

Svo.. þessi helgi var nokkuð skárri en sú síðasta.. þó ég var líka að vinna núna, svo fór ég í vinnuna kl 17 í gær og þurfti svo að vinna til 8 um morguninn, fór þá heim að sofa og var mætt aftur í vinnu kl 18. Skrítið að fara ekki að sofa fyrr en eftir Glæstar. Btw, loksins fann Ridge Taylor!!

Jæja, ég er orðin vægast sagt þreytt svo ég ætli á háttinn núna:haha:

Lísbet


» 20 hafa sagt sína skoðun

04.08.2005 14:55:21 / sigrun

versló!

Svona var mín verslunarmannahelgi

Föstudagur: vinna til 4, sársaukafull vaxmeðferð á augabrúnum, tívolí, heim til Lísbetar að láta flétta mig, núðlur á pengs og heim að taka sig til fyrir djammið.Við byrjuðum heima hjá Sabbó og drukkum þar, þótt sumir voru nú orðnir vel drukknir þegar við komum hehe:haha: Svo seinna röltuðum við niður í bæ, byrjað var á að fara í tilvolíið eða ég Lísbet og Einar Logi sem var auðvitað bara gaman. Ég var búin að vera að segja við krakkana að ég myndi pottþétt fara í kúluna ef einhver myndi bjóða mér því shit hvað það var dýrt að fara í hana. En um kvöldið vorum við í fótbolta, drukkum okkur meira og meira full, keyptum svona bling bling drasl og ég kíldi einhvern ógeðslegan strák 2 í fésið sem átti það vel skilið að mínu mati8) Síðan fórum við nokkur á amor sem var mjög gaman utan við mikin fjölda af fólki og svo var ferðini haldið heim einhverntíma mjög seintum kvöldið eða snemma um morguninn:$

Laugardagur: Ég og Elva fórum á greifann að fá okkur þyknumat sem var MJÖG gott, fórum í tívoliið eftir svina 30 mín tuð því Elva vildi ekki fara en það var alveg 1000 kr virði því ég borgaði  fyrir hana;)Og ég hélt áfram að segja að ef einhver myndi borga fyrir mig í kúluna myndi ég fara.síðan vorum við e-ð að rölta í bænum og skoða í búðir og svo heim að taka sig til fyrir djamm nr 2. Lísbet náði í mig og Jonnu og löbbuðum við svo niður í bæ, löbbuðum í bænum með poka af bjór eins og asnar, sem var ekki alveg að vera jafnt fljótur að virka eins og á föstud.:$ Fórum síðan og stóðum í röð í svona 40 mín eftir að geta keypt miða í sjallan sem við betur fer fengum.Svo kíkktum við uppá tjaldstæði að hitta Davíð og co sem var ekkert geðveikt gaman þannig ferð okkar var haldið í sjallan.Ég er ekki viss hvort ég hafi séð svona mikið fólk þar áður, en eins og dyravörðurinn sagði þegar ég spurði hvort við mættum fara út að það væri ekki víst að við kæmumst inn aftur því það væru e-ð um 500 manns að reyna að komast inn, en þetta var samt gaman, hittum skemmtilegt fólk, ég drakk meira og meira dönsuðum e-ð og biðum í 30 mínútna röðum til að komast í klósett:!: Þegar ég var komin með nó þá hitti ég Davíð, keyptum okkur að borða og heimm að sofa.

Sunnudgur: Gerði mjög fátt um daginn en kíkkti síðan út með Ástu systir og Ask, fórum í tívolíið:!: hvað ætli ég hafi eytt miklum pening þar? hehe:haha: Síðan fór ég að ná í bjór til Davíðs, heim að borða og taka mig til fyrri djamm nr 3:!: Fór til Ástu og Lísbet kom síðan þangað. Við heltum aðeins í okkur og fórum svo út. Ég og Lísbet fórum einn einu sinni í tivoliið, tækið sem maður fer frekar hátt upp og sníst í hringi var geggjað gaman, kannski því við vorum svo ónæmar fyrir hinu:$ Og mig var farið að langa frekar mikið í kúluna. Fórum svo að hitta Ástu og löbbuðum síðan í bæinn, Á leiðinni þangað vara ég að tala um það við Valda vin  hennar hvað mig langaði geðveikt í kúluna en tímdi því ekki því það væri svo dýrt og vitiði hvað???? Hann BAUÐ mér og Ástu í hana því honum langaði svo til að sjá okkur í henni:!: Þannig eftir svona hálftíma stress og 10 sígarettur vorum við Ásta sestar uppí hana, og svo skutumst við upp, og SHIT hvað þetta var GEÐVEIKT GAMAN:haha::haha::haha: Vá þetta var svo geðveikt:!: Ég sé sko ekki eftir því að hafa látið Valda eyða 5000 í okkur hehe;) síðan fórum við Lísbet e-ð að keyra tókum nokkra stráka frá króknum uppí sem byrjaði ílla en endaði vel, en svo verður restin af kvöldinu bara geymd í minninguni.

Sigrún


» 26 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7